Notkunarskilmálar
Síðast uppfært: 27.10.2026
Þessir skilmálar gilda um notkun appsins Húsó, sem Markússon Studios ehf., kt. 661026-0140, Drekavellir 36, 221 Hafnarfjörður („við“), rekur. Með því að stofna aðgang samþykkir þú skilmálana og persónuverndarstefnu Húsó.
1. Hvað Húsó er
Húsó hjálpar íbúum og stjórn húsfélags að deila fréttum, tilkynna bilanir, halda utan um upplýsingar og reglur hússins og skipuleggja þrif og verkefni. Húsó er verkfæri. Við erum ekki aðili að húsfélaginu þínu og tökum ekki ákvarðanir fyrir það.
2. Aðgangurinn þinn
- Þú þarft að vera 16 ára eða eldri.
- Gefðu upp rétt nafn og veldu íbúðina sem þú býrð í eða átt.
- Einn aðgangur er fyrir eina manneskju. Haltu lykilorðinu þínu leyndu.
- Þú berð ábyrgð á því sem gert er í þínu nafni í appinu.
3. Hús og stjórn
- Sá sem stofnar hús í Húsó verður formaður þess í appinu og á aðeins að gera það með umboði húsfélagsins eða stjórnar þess.
- Stjórnin samþykkir eða hafnar nýjum íbúum og ber ábyrgð á því að upplýsingar um húsið, húsreglur og íbúðalisti séu rétt. Við sannreynum ekki eignarhald eða búsetu.
- Stjórnarmenn sjá símanúmer og netföng allra í húsinu og á aðeins að nota þau í þágu húsfélagsins.
- Húsó kemur ekki í stað formlegra krafna laga um fjöleignarhús nr. 26/1994. Fundarboð, ákvarðanir húsfunda og annað sem lög eða samþykktir húsfélagsins kveða á um þarf að gera með þeim hætti sem lögin krefjast. Ekkert í appinu er lögfræðiráðgjöf.
Persónuvernd í húsinu. Húsfélagið er ábyrgðaraðili upplýsinga sem verða til innan hússins í Húsó, og Markússon Studios er vinnsluaðili þess. Með því að stofna hús í Húsó samþykkir formaður, fyrir hönd húsfélagsins, að við vinnum þessar upplýsingar með eftirfarandi hætti:
- við notum þær aðeins til að reka Húsó fyrir húsfélagið, aldrei í eigin tilgangi;
- við gætum öryggis þeirra og bindum starfsfólk trúnaði;
- við notum aðeins þá undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í persónuverndarstefnunni og látum vita áður en við bætum nýjum við;
- við aðstoðum stjórnina við að svara beiðnum íbúa um aðgang, leiðréttingu og eyðingu;
- við látum stjórnina vita af öryggisbresti án óþarfa tafar;
- ef húsfélagið hættir að nota Húsó eyðum við gögnum þess, eða afhendum þau fyrst ef þess er óskað.
Stjórnin sér um að íbúar viti að húsið noti Húsó og skráir einn stjórnarmann sem tengilið hússins við okkur, meðal annars vegna reikninga.
4. Efnið þitt
- Þú átt það sem þú setur inn: texta, myndir og myndbönd.
- Þú veitir okkur heimild til að geyma efnið og sýna það þeim sem eiga að sjá það samkvæmt persónuverndarstefnunni, aðeins til að reka Húsó.
- Þú berð ábyrgð á efninu þínu og á að hafa rétt til að deila því.
- Sýndu tillitssemi þegar þú tekur myndir og myndbönd: ekki mynda fólk eða inn í íbúðir annarra án leyfis, og ekki birta númeraplötur, kennitölur eða aðrar persónuupplýsingar um aðra að óþörfu.
5. Það sem er bannað
Við líðum ekki móðgandi eða skaðlegt efni. Þú mátt ekki:
- áreita, hóta, smána eða mismuna öðrum, þar á meðal á grundvelli uppruna, trúar, kyns, kynhneigðar, fötlunar eða annars;
- birta ólöglegt efni, klám, ofbeldi eða efni sem brýtur gegn rétti annarra;
- birta viðkvæmar upplýsingar um aðra, svo sem heilsufar eða fjárhag;
- senda ruslpóst eða auglýsingar sem koma húsinu ekki við;
- reyna að komast inn í hús sem þú tilheyrir ekki, í aðgang annarra eða framhjá öryggi appsins.
6. Tilkynningar, lokanir og fjarlæging efnis
- Þú getur tilkynnt efni og lokað á notanda (block) beint í appinu. Þá sérðu ekki lengur efni frá viðkomandi.
- Stjórn hússins getur fjarlægt efni í sínu húsi sem brýtur gegn húsreglum eða þessum skilmálum.
- Við getum fjarlægt efni og lokað aðgangi sem brýtur gegn skilmálunum. Tilkynningum sem berast okkur á support@husoapp.is svörum við innan sólarhrings.
7. Bilanir eru ekki neyðarlína
Bilanatilkynning í Húsó fer til stjórnar hússins, sem sér hana ekki endilega strax. Ef hætta er á ferðum, svo sem eldur, gasleki eða slys, hringdu í 112. Við bráða vatnsleka eða rafmagnsbilun skaltu einnig hafa beint samband við stjórnina eða fagmann.
8. Verð
Húsó er ókeypis í fyrstu útgáfu og á meðan prófunum stendur. Eftir það verður Húsó í áskrift sem húsfélagið greiðir. Við kynnum verð og skilmála áskriftar með góðum fyrirvara, og ekkert er rukkað nema húsfélagið samþykki áskriftina sérstaklega.
9. Þjónustan
Við reynum að hafa Húsó alltaf aðgengilegt og öruggt, en getum ekki lofað að það sé aldrei niðri eða villulaust. Við getum bætt við, breytt eða hætt með eiginleika. Ef við hættum rekstri Húsó látum við vita með a.m.k. 30 daga fyrirvara svo húsfélög geti sótt gögnin sín.
10. Ábyrgð
Appið er afhent eins og það er. Að því marki sem lög leyfa berum við ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, á efni sem notendur setja inn, eða á ákvörðunum stjórnar eða nágranna. Ekkert í þessum skilmálum takmarkar rétt þinn sem neytanda samkvæmt íslenskum lögum, né ábyrgð okkar á tjóni sem við veldum af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
11. Uppsögn
Þú getur eytt aðganginum þínum hvenær sem er í appinu (Prófíll → Eyða aðganginum mínum). Formaður í húsi þar sem aðrir íbúar eru skráðir þarf fyrst að afhenda formannshlutverkið. Við getum lokað aðgangi sem brýtur gegn skilmálunum alvarlega eða ítrekað.
12. Breytingar á skilmálum
Ef við breytum skilmálunum verulega biður appið þig um að samþykkja nýju útgáfuna áður en þú heldur áfram.
13. Lög og varnarþing
Íslensk lög gilda um þessa skilmála. Ef þú ert neytandi í öðru EES-ríki heldur þú þeirri vernd sem ófrávíkjanleg lög búsetulands þíns veita þér. Ef ágreiningur verður reynum við fyrst að leysa hann í sátt. Takist það ekki má reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, en neytendur geta einnig höfðað mál í búsetulandi sínu.
14. Hafa samband
Markússon Studios ehf., kt. 661026-0140, Drekavellir 36, 221 Hafnarfjörður. Netfang: support@husoapp.is.